2007-03-05

 
Við hjónakornin skruppum í skotferð norður til Akureyrar eins og sjá má t.d. hér.

Á leiðinni norður þá gerðist það fjórum sinnum að Lexusbílar tóku fram úr okkur. Fyrst nálægt Borgarnesi síðan einhvers staðar á Holtavörðuheiðinni og í þriðja skipti í Vatnsskarðinu. Í sjálfu sér ekki merkilegt nema að í fyrsta og tvö síðastu skiptin var um sama bílinn að ræða. Hann hefur sjálfsagt stoppað einhvers staðar til að næra sig. Við aftur á móti vorum með nesti og stoppuðum mjög stutt.

Í fyrstu tvö skiptin, var Lexusinn horfinn eftir smá stund. Við hugsuðum ekki meira um þetta þangað til við sáum blá blikkandi ljós í Skagafirðinum, rétt áður en var lagt á Öxnadalsheiði. Ég sagði þá við Hildigunni: „Ætli þetta sé ekki Lexusinn, sem er búinn að æða fram úr okkur.“ Og mikið rétt, það var hann. Við gátum ekki gert að því að glotta svolítið að þessu.

Á miðri Öxnadalsheiðinni tók hann svo fram úr okkur í þriðja skipti. En það var samt ekki eins mikið span á honum og í fyrri tvö skipin.

Efnisorð:


Comments:
hvað meinarðu? víst var það merkilegt! Ég held að það hafi enginn annar tekið fram úr okkur en þessir Lexusar.
 
Þú meinar. Einu bílarnir, sem voru nógu kraftmiklir til að skilja kaggann okkar eftir...
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?