2006-09-17

 

Eggjakast

Haldið þið ekki að það hafi ekki verið grýtt eggi á húsið okkar í fyrrinótt!

Veit ekki hvort menn eru farnir að taka með sér eggjabakka á djammið. Allavega hafði einu eggi verið hent á húsið okkar þegar ég kom út í gærmorgun. Rétt hjá var svo tómur eggjabakki.

Einhvern veginn finnst mér þetta verra heldur en ef að hefði verið krotað á húsið. Þetta er mun persónulegra ef svo má að orði komast.

Comments:
Æ, fólk getur verið svo skrýtið.
 
Er ekki samt auðveldara að ná eggjunum af?
 
jú, sem betur fer var það ekkert sérlega mikið mál. Svosem ekki erfitt með krotið heldur, við málum bara yfir það, yfirleitt. Græni liturinn er svo sterkur að það þarf ekki nema eina umferð. Ekki það, það er reyndar mjög sjaldan krotað á húsið, man eftir því tvisvar síðan við fluttum (fyrir 11 árum)
 
Svo kom í ljós að fleiri hús í götunni höfðu orðið fyrir sömu meðferð. Einhver hefur greinilega tekið eggjabakka með sér á djammið...
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?